lífið er hverfult.

Ég verð að segja eins og er að ég er búinn að vera með í maganum s.l. daga út af mínu litla fagra landi, íslandi !! óvissan og hröð atburðarrás atburða sem enginn í sínum villtustu draumum átti von á.  Þar sem ég er búsett í Svíþjóð geri ég mér ekki fulla grein fyrir því hvernig fólki líður heima en eflaust eru allir í sjokki og vita ekki hvert framhaldið verður.

Eftir á að hyggja getur maður kannski séð að öll þessi brjálaða neysla og ytri frontur sem við íslendingar erum svo dugleg að byggja upp er ekki alveg eðlileg!

kröfurnar sem við setjum á okkur sjálf með glæsilegum heimilum, bílum, fötum er  í rauninni fáránlegur og sorglegur!! hvað hefur það gefið okkur!! ekkert nema að við viljum alltaf meira og flottara og helst flottara en nágrannans!!

Það er kominn tími á að við hægjum á okkur lítum inn á við hlúum að okkur sjálfum og fjölskyldum okkar!!

Það má segja að ég og mín fjölskylda höfum lært mikið af því að búa í Svíþjóð! þar sem að tekjur heimilisins lækkuðu töluvert við flutninginn og vinnutíminn minni! þá þurftum við algerlega að taka okkur á í neyslunni, það er ekki lengur t.d. sjálfsagt að kippa með einni DVD mynd í matarinnkaupunum eða versla föt í tíma og ótíma!! engir peningar til að skipta út gamla úr sér gengna borðstofuborðinu það verður látið duga!! 

það er að láta sér nægja það sem er, hrikalega var það erfitt í byrjun að sætta sig við að geta ekki leyft sér það sem manni datt í hug!! 

Það er auðveldara núna og mig skortir ekki neitt, nákvæmlega ekki neitt!! þó að ég hafi um það bil úr helmingi minna að spila úr en áður!!

lífið er hverfullt og síbreytilegt, ekkert staldrar við að eilífu hlutir, manneskjur koma og fara, peningar koma og fara, góðir tímar, slæmir tímar koma og fara!! þannig er lífið!!!

saknaðar&baráttukveðjur frá Svíþjóð

  


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband