24.7.2008 | 12:13
Ef morgundagurinn rynni ekki upp!
Ég velti fyrir mér , ef dagurinn í dag yrði minn síðasti að það yrði ekki neinn morgundagur, hvernig myndi ég haga mér ? Myndi ég sleppa að kyssa manninn minn bless áður en hann fer í vinnunna? ef ég vissi að morgundagurinn rynni ekki upp? myndi ég vera eins óþolinmóð og stundum pirruð við börnin mín? Myndi ég gleyma að líta í kringum mig og sjá öll litbrigði lífsins? Myndi ég koma öðruvísi fram við samferðafólk mitt þennan dag?
Ef ég vissi fyrir víst að morgundagurinn rynni ekki upp myndi ég svo sannarlega hegða mér öðruvísi, ég myndi slaka meira á og gefa eftir, ég myndi ekki sleppa að kyssa manninn minn bless áður en hann færi í vinnunna, ég myndi gefa svo miklu meira af mér til allra og ekki halda aftur að mér að segja mínum nánustu hvað ég elsku þau mikið og hvað þau eru mér mikils virði, ég myndi staldra meira við og bara anda... ég myndi þakka fyrir hverja stund, augnablik af þessu lífi...
Ég veit bara eitt að með því að hugsa á þennan hátt þá getur manni tekist að lifa lífinu að fullu að lifa lífinu lifandi því við vitum aldrei hvað við eigum mikin tíma eftir!!! við erum ekki eilíf og við skulum ekki spara það að gefa af okkur og elska !!
Rigningunni hefur slotað,skýin hefur rekið burt og loftið er aftur tært.
Ef hjarta þitt er hreint, þá er allt í þínum heimi hreint..
þá munu tunglið og blómin vísa þér veginn. (Um hjartað liggur leið )
knús
inga
motta
betareynis
gudmundurhelgi















Athugasemdir
Hae Inga min!!! Langt sidan eg hef heyrt fra ther, vona ad thad se allt gott ad fretta af ther og thinum. Vildi bara segja ther ad eg kikji alltaf a bloggid thitt - svo gott ad lesa skilabodin thin - vekja mann til umhugsunnar. Thad er nefnilega svo audvelt ad tapa ser i stressinu og latunum i daglegu lifi og gleyma ad stoppa og njota augnabliksins.
Annars er bara allt gott ad fretta af mer her i London - hitti Krissu her thar sidustu helgi - var i rosa studi i skvisuferd ;-)
Knus til ykkar allra,
Linda
Linda Dögg Hlöðversdóttir, 5.8.2008 kl. 16:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.