16.10.2008 | 10:41
lífið er hverfult.
Ég verð að segja eins og er að ég er búinn að vera með í maganum s.l. daga út af mínu litla fagra landi, íslandi !! óvissan og hröð atburðarrás atburða sem enginn í sínum villtustu draumum átti von á. Þar sem ég er búsett í Svíþjóð geri ég mér ekki fulla grein fyrir því hvernig fólki líður heima en eflaust eru allir í sjokki og vita ekki hvert framhaldið verður.
Eftir á að hyggja getur maður kannski séð að öll þessi brjálaða neysla og ytri frontur sem við íslendingar erum svo dugleg að byggja upp er ekki alveg eðlileg!
kröfurnar sem við setjum á okkur sjálf með glæsilegum heimilum, bílum, fötum er í rauninni fáránlegur og sorglegur!! hvað hefur það gefið okkur!! ekkert nema að við viljum alltaf meira og flottara og helst flottara en nágrannans!!
Það er kominn tími á að við hægjum á okkur lítum inn á við hlúum að okkur sjálfum og fjölskyldum okkar!!
Það má segja að ég og mín fjölskylda höfum lært mikið af því að búa í Svíþjóð! þar sem að tekjur heimilisins lækkuðu töluvert við flutninginn og vinnutíminn minni! þá þurftum við algerlega að taka okkur á í neyslunni, það er ekki lengur t.d. sjálfsagt að kippa með einni DVD mynd í matarinnkaupunum eða versla föt í tíma og ótíma!! engir peningar til að skipta út gamla úr sér gengna borðstofuborðinu það verður látið duga!!
það er að láta sér nægja það sem er, hrikalega var það erfitt í byrjun að sætta sig við að geta ekki leyft sér það sem manni datt í hug!!
Það er auðveldara núna og mig skortir ekki neitt, nákvæmlega ekki neitt!! þó að ég hafi um það bil úr helmingi minna að spila úr en áður!!
lífið er hverfullt og síbreytilegt, ekkert staldrar við að eilífu hlutir, manneskjur koma og fara, peningar koma og fara, góðir tímar, slæmir tímar koma og fara!! þannig er lífið!!!
saknaðar&baráttukveðjur frá Svíþjóð
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2008 | 11:22
Allt er af hinu góða ;0)
ég hvíli í fullvissu þess að allt í lífi mínu sé af hinu góða og að lífið sé gott. Að á endanum verður allt sem best verður á kosið fyrir mig og alla í kringum mig.
ég nýt dagsins i dag og samþykki þetta augnblik sem mitt líf. ég sé líka að það er ástæða fyrir öllu sem gerist í lifi okkar og að það er af hinu góða.
ég lifi í allsnægtum, ég hef alltaf allt það sem ég virkilega þarf, ég finn tilgang með lífi mínu og smám saman er ég nær mínu takmarki. lífið er spennandi ferðalag, þar sem við kynnumst mörgu&misjöfnu fólki á leið okkar og finnum að við getum alltaf eitthvað lært af hverju og einu þeirra.
djúpt inn í hjarta okkar finnast kraftaverkin sem gerir lífið að stórkostlegu ævintýri ef við kjósum svo.
inga
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2008 | 08:44
Á leið í vinnunna
Í morgun hjólaði ég í vinnunna sólin skein og það var svo hlýtt og fallegt ;0) eitt af því sem gerir það svo ómótstæðilegt að búa í Svíþjóð ;0) ´
hér kemur örstutt hugleiðing sem kom til mín á leiðinni í vinnunna...
ég fann að þegar við sleppum,
leggjum líf okkar og vilja í hans hendur
hlotnast okkur gjafir sem við höfðum aldrei getað dreymt um að,
við myndum augum líta í þessu lífi,
ég sleppi,
og er frjáls
enginn ótti sækir á mig meir..
eigið góðan dag
ykkar
inga
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2008 | 18:48
þegar ég óttast!!
í hvert skipti sem ég finn óttan læðast aftan að mér og í hvert sinn þegar ég reyni að stjórna aðstæðum sem eru mér ofviða eða utan mín verkahrings segji ég ; ég sleppi , ég sleppi , ég sleppi tökunum, ég gef eftir algjörlega og losna undan þeirri þjáningu að finnast ég þurfa að standa og falla með öllu, lífið er síbreytilegt það er það eina sem við getum treyst á, allt kemur og fer og með því að gefa eftir treysti ég því að allt er fullkomið eins og það er núna í núinu, hvernig svo sem það er, eftir mínum hugsunum og þrám eða ekki.
Ég reyni á eins heiðarlegan hátt og mér er unnt að taka lífinu eins og það kemur með þeirri velgengi og áföllum sem það hefur uppá að bjóða og hneigi mig fyrir því af lotningu og segi í hvert skipti ég gef eftir...
það er ekki auðvelt því við viljum svo innilega stjórna og að allt sé eftir okkar eigin uppskriftum... en þannig er ekki lífið...
treystum því að á hverri stundu er það eins og það á að vera og ef við getum opnað okkur fyrir því eins og það er núna ...
verður upplifun okkar svo djúp og þakklát og við finnum fyrir því að lífið býður upp á svo miklu meira en okkur hefði nokkurn tíma geta dreymt um!
sólarkveðja frá svíþjóð ;0)
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.7.2008 | 12:13
Ef morgundagurinn rynni ekki upp!
Ég velti fyrir mér , ef dagurinn í dag yrði minn síðasti að það yrði ekki neinn morgundagur, hvernig myndi ég haga mér ? Myndi ég sleppa að kyssa manninn minn bless áður en hann fer í vinnunna? ef ég vissi að morgundagurinn rynni ekki upp? myndi ég vera eins óþolinmóð og stundum pirruð við börnin mín? Myndi ég gleyma að líta í kringum mig og sjá öll litbrigði lífsins? Myndi ég koma öðruvísi fram við samferðafólk mitt þennan dag?
Ef ég vissi fyrir víst að morgundagurinn rynni ekki upp myndi ég svo sannarlega hegða mér öðruvísi, ég myndi slaka meira á og gefa eftir, ég myndi ekki sleppa að kyssa manninn minn bless áður en hann færi í vinnunna, ég myndi gefa svo miklu meira af mér til allra og ekki halda aftur að mér að segja mínum nánustu hvað ég elsku þau mikið og hvað þau eru mér mikils virði, ég myndi staldra meira við og bara anda... ég myndi þakka fyrir hverja stund, augnablik af þessu lífi...
Ég veit bara eitt að með því að hugsa á þennan hátt þá getur manni tekist að lifa lífinu að fullu að lifa lífinu lifandi því við vitum aldrei hvað við eigum mikin tíma eftir!!! við erum ekki eilíf og við skulum ekki spara það að gefa af okkur og elska !!
Rigningunni hefur slotað,skýin hefur rekið burt og loftið er aftur tært.
Ef hjarta þitt er hreint, þá er allt í þínum heimi hreint..
þá munu tunglið og blómin vísa þér veginn. (Um hjartað liggur leið )
knús
inga
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.6.2008 | 11:53
Er mér hugleikið!
Byrjaði að lesa aftur bókina hans Coelho By the river piedra i sat down and wept!! man þegar ég keypti mér hana þegar ég bjó í Bath á Englandi fyrir 12 árum síðan!! keypti hana aðallega af því að umslagið var svo fallegt og sá síðar að bókin var einnig árituð ;) ástæða þess að ég nefni þessa bók er að ein síða í henni er svo mögnuð og er mér svo hugleikin þessa dagana að ég bara verð að skrifa hana upp f. ykkur hér á blogginu ;)
"You have to take risks, he said. We will only understand the miracle of life fully when we allow the unexpected to happen.
Every day, god gives us the sun-and also one moment in which we have the ability to change everything that makes us unhappy. Every day,we try to pretend that we havent percived that moment, that it dosent exist- that today is the same as yesterday and will be the same as tomorrow. But if people really pay attention to their everyday lifes, they will discover that magic moment. It may arrive in the instant when we are doing something mundane, like putting our frontdoor key in the lock; it may lie hidden in the quiet that follows the lunch hour or in the thousand and one things that all seem the same to us. But that moment exists-a moment when all the power of the stars becomes a part of us an enables us to perform miracles.
Joy is sometimes a blessing, but it is often a conquest. Our magic moment helps us to change and sends us off in search of our dreams. Yes, we are going to suffer, we will have difficult times, and we will experience many disapointments-but all of this is transitory; it leaves no permanent mark. And one day we will look back with pride and faith at the journey we have taken.
Pitiful is the person who is afraid of taking risks. Perhaps this person will never be disappointed or disillusioned; perhaps she wont suffer the way people do when they have a dream to follow. But when that person looks back-and at some point everyone looks back -she will hear her heart saying " what have you done with the miracles that God planted in your days? What have you done with the talents God bestowed on you? You buried yourself in a cave because you were fearful of losing those talents. So this is your heritage:the certainty that you wasted your life."
Pitiful are the people who must realize this. Because when they are finally able to believe in miracles, their lifes magic moments will have already passed them by" (BY the river piedra i sat down and wept , Pauelo Coelho s. 8-9 )
alveg magnað ;) Las hina heimsþekktu bók Jane Eyre um daginn mæli með henni ótrúlega flott skrifuð ;)
knús
Inga
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2008 | 19:35
Dagurinn í dag
dagurinn í dag er það eina sem skiptir máli!! þessi sekúnda núna sem ég skrifa er það eina sem skiptir máli ekki hvað muni gerast á morgun eða hvað ég var að gera áðan!! það er mikið púl&vinna að draga hugan tilbaka aftur og aftur að núinu! að vera hér og nú!!
Fyrir mig er ótrúlega mikilvægt að reyna alltaf að vera í núinu því að það hjálpar mér að finna fyrir lífinu sjálfu, að hlusta á sjálfan mig... hvað vil ég... hvernig líður mér núna...hvað er það sem skiptir mig máli... og það hjálpar mér að snúa kvíðann niður 
ég held ótrauð áfram að tína uppúr bakpokanum góða og er glöð að glíma við gömlu draugana og kveða þá niður í eitt skipti fyrir allt því að þetta líf er allt of stutt til að eyða því í vanlíðan og gamlan sársauka... já sárin gróa með tímanum þegar að maður getur sem fullorðin eiginlega orðið foreldri sjálfs síns ... ég get gengið mót Ingibjörgu litlu faðmað hana og sagt henni að allt sé í lagi að ég sé til staðar fyrir hana og passa hana... alltaf ... þá finn ég að þrátt fyrir allt er ég sterk&góð kona og reyni eins vel og ég get að vera sjálfri mér góð því það hef ég ekki alltaf verið!!
smá ljóðakorn til að næra sál&anda úr sanskrít
"Gæt þessa dags
því að hann er lífið
lífið sjálft
og í honum býr allur veruleikinn
og sannleikur tilverunnar
unaður vaxtar og grósku
dýrð hinna skapandi verka
ljómi máttarins
Því að gærdagurinn er draumur
og morgundagurinn hugboð
en þessi dagur í dag, sé honum vel varið
umbreytir hverjum gærdegi
í verðmæta minningu
og hverjum morgundegi í vonarbjarma.
Gæt þú því vel þessa dags
Eigið góða helgi elskurnar mínar ! hér er spáð um 25 stiga hita um helgina
ykkar inga
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.5.2008 | 14:15
Sumarið er komið
Já loksins er sumarið komið !! hér í Lundi er um 20 stiga hiti og allt í fullum blóma!! og það er ekkert fallegra en að horfa á litadýrð náttúrunnar þessa dagana bleik,græn&hvít tré... ég verð að segja að maður fyllist gleði&krafti í hjartanu við þessa birtu og fegurð!! Börnin leika berfætt út í garði og litli Mikael á typpalingnum... getur lífið orðið eitthvað betra...
fyrirtækjaströgglið heldur sinn vanagang og á hverjum degi lærir maður alltaf eitthvað nýtt.. er að fara í kvöld á námskeið í jóga gegn streitu&kvíða... hlakka mikið til .. í haust er planið að fara í gang með námskeið í jóga gegn kvíða&þunglyndi það verður spennandi verkefni!!! heimasíðan mín er búinn að fara í smá fegrunaraðgerð þið megið endilega kíkja á hana og skrifa í dagbókina ;) www.omyoga.nu var að klára góða bók núna um helgina og mæli eindregið með henni saffranseldhúsið held ég að hún heiti á íslensku...
Annars er ég sjálf að takast á við gömlu draugana mína sem fylgja mér alltaf kvíðann&óttan og hef ákveðið að nú ætla ég að sigrast á þeim og hætta að láta þá stjórna lífi mínu... maður heldur alltaf að maður sé búinn að tæma bakpokann... en ég finn það núna að hann er ansi þungur og ég vill endilega létta á honum og gefa mér leyfi til að lifa lífinu án ótta og kvíða.... reyna að slaka á og vera í flæðinu .. hef reyndar talað um það áður og mun eflaust gera það mörgum sinnum í viðbót af því að það er svo gott þegar það tekst að finna fyrir núinu og fara inná við og bara leyfa sér að vera án væntinga&krafna... og það sem ég hef komist að núna í minni sjálfsvinnu er að því miður er það svo að ég ómeðvitað vel sjálf óttan&kvíðann því að það kann ég svo vel... ég þori ekki að velja það jákvæða... og afhverju er það svo er að finna út úr því læt ykkur vita þegar ég hef komist að því ... ;)
alltaf gott að hreinsa aðeins till og hrista upp í sér og reyna að skilja afhverju við hegðum okkur eins og við gerum og afhverju við bregðumst við stundum á harkalegan hátt eða hvaða hátt sem er ...
það sem ég vil gera frá og með núna er að lifa lífinu, reyna að njóta þess eins mikið og ég get, njóta barnanna minna, hafa gaman, þora að gera það sem mitt hjarta kallar á án ótta&kvíða...
elska ykkur öll
Inga
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2008 | 09:13
Vorið
það hefur ekkert gengið hjá mér að skrifa!! en ætla núna að fara að bæta úr því ;) Vorið er á næsta leyti hjá okkur og maður finnur hvernig allir verða glaðari og léttari í lund. Hef verið að lesa mikið af áhugaverðum bókum ein heitir kúnstin að vera góður og fjallar um af hverju við séum góð út frá mörgum sjónarhornum siðferðislegu, heimspekilegu og trúarlegu mjög áhugaverð bók!! síðan las ég því minna þú gerir því meira verður þér úr verki!! líka góð bók þar er tekið mikið fyrir þetta að ef maður er ekki alltaf á fullu þeytast hingað og þangað að þá sé maður í rauninni einskis virði og það eru svolítið skilaboðin frá samfélaginu að þú getur ekki verið merkilegur/mikilvægur ef þú ert ekki alltaf upptekin og með verkefni hingað og þangað!! síðan las ég hvað gerðist á leiðinni til Damaskus í þessari bók er verið að skoða allar heimildir sem til eru um Jesús og hvort að hann hafi í raun og veru verið til skv. því!! og núna ligg ég í 13 sagan og hún lofar góðu!! ohhh ég elska að lesa
Var að horfa á mynd um daginn sem var mjög góð og fjallaði um konu sem liggur á dánarbeði sínu og rifjar upp líf sitt og margt í lífi sínu finnst henni hafa verið mistök en myndin sýnir manni hvernig maður getur upplifað líf sitt sem mistök eða að ekkert er til sem er mistök . Þá fór ég að hugsa hvernig ætli maður eigi eftir að líta á líf sitt þegar þar að kemur? verður maður sáttur eða ?? það er ágætt að spyrja sig þessarar spurningar því að þá er tími til að breyta því !! við mannskepnurnar höldum nefnilega að lífið sé að eilífu og áttum okkur ekki á að við eigum bara smá tíma hérna á jörðinni og gleymum ekki að nýta þennan tíma vel!!! og þá er gott að forgangsraða í lífi sínu og fyrir mig er það ansi einfalt númer eitt hjá mér eru börnin mín og Jón og auðvitað Lone okkar og ég hef fundið það svo sterkt eftir að ég fór út í fyrirtækjareksturinn sem er búið að vera klikkuð vinna að það eina sem skiptir mig máli í lífinu er að ég reyni að vera heilli og betri manneskja og komi fram við fjölskyldu mína og samferðafólk af virðingu&kærleika og að eyða sem mestum tíma með fjölskyldunni minni og vinum!!!
munum að þakka fyrir hvern dag sem við fáum og ákveða á hverjum morgni að dagurinn í dag verði góður og gefandi ;)
risaknús til ykkar allra
inga
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2008 | 11:45
Febrúar!!
Nú er janúar búinn og búið að vera ansi rólegt í verslunarrekstrinum ;( en það er auðvitað lélegasti mánuðurinn f. verslunareigendur... Ég finn samt hvernig óttinn grípur um sig og heldur mér í heljargreipum!! ég er nefnilega svo fljót að verða hrædd og óttast allt það versta.. ég er nefnilega svolítið svart/hvít hugsandi... annaðhvort er allt svart eða hvítt og ekkert þar á milli ég á óskaplega erfitt með að sjá allt litrófið!! og trúið mér það er ekki auðvelt að vera þannig
og gott dæmi um það er einu sinni þegar ég var að setja upp jólaskrautið heima hjá okkur.. við eigum mikið af skrauti þar sem undirrituð er mikil jólastelpa og kaupir mikið jólaglingur og síðan átti að fara að setja allt upp en það var bara ekki pláss f. allt og sumt passaði ekki saman og.svo.frv. og þetta var bara orðið hið erfiðasta mál fyrir mig þegar að Jón kom með þá frábæru uppástungu að maður þyrfti ekki að setja upp allt jólaskrautið.. ég gæti til dæmis valið það sem mér finnist fínt og geymt hitt.. en frábær hugmynd!!! en þetta hefði mér ekki getað dottið í hug það þurfti að koma öllu glingrinu fyrir af því að ég sá ekki hina litina... bara svart eða hvítt... og það er svo mikill léttir þegar maður finnur að það er hægt að gera hlutina t.d. öðruvísi... þar að auki á ég það til að taka lífinu allt of alvarlega og gleyma að njóta dagsins, lífsins og að spyrja sjálfan mig hvað er það versta sem getur gerst og svarið er yfirleitt að það er ekkert hræðilegt sem getur gerst
!! Og þegar óttinn tekur völdin finnst mér hjálpa mikið að skrifa niður hvað það er sem veldur mér ótta og skoða það.. og spyrja mig hversu raunverulegur hann sé og hvort að hann eigi við einhver rök að styðjast... og oftast er það svo að hann á ekki við nein rök að styðjast og það eina sem hann gerir er að láta mér líða illa... þess vegna er best að horfast í augu við hann og síðan sleppa honum... Gott væri fyrir mig(ætlaði að skrifa ég þarf/verð en það á maður ekki að gera!!!) að gefa sjálfri mér leyfi til að opna hjartað mitt án ótta við lífið og leyfa því að flæða .. og ég veit það sjálf að ekkert er betra en þegar það tekst það er eins og yndislegur draumur það er eins og að vakna upp á nýtt til lífsins !!! bara smá hugleiðing um óttan sem ég veit að við öll glímum við einhvern tíman en í mismiklum mæli!! því að við megum ekki gleyma að við erum ekki einsömul, við speglum hvort annað og erum á sama báti í þessu lífi!! enginn betri eða verri!!!
læt eitt fallegt ljóð fylgja með er reyndar á sænsku en þið skiljið meininguna!!
Räds inte, mitt hjärta
Även den mörkaste natt tar slut vid gryningen!
Moln och dimmor kommer och går
Men de kan inte beröva solen dess strålande sken
Se upp, mina ögon, håll ständigt vakt
För du får aldrig lämna din vägledande stjärna ur sikte
Håll fast vid den, håll fast!
Vila får du när du knogat färdigt.
Swami Paramananda
p.s. 3 góðar bækur: fimmta barnið eftir Doris Lessing, þúsund bjartar sólir, hálf gul sól (er ekki til á íslensku!! set á bókalistann fljótlega!! eru allar frábærar!!
knús&kossar til ykkar allra
sólin skín en það er kalt...
inga
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

motta
betareynis
gudmundurhelgi














